Já það er með sanni sagt að þetta er orðið aldeilis dapurt hjá
okkur blogglega og myndalega séð.
Við María höfum haft það fínt síðan við komum aftur til London
en frá því við komum aftur hef ég skilað bókinni minni um
breytingar í á hegðun íslenskra fjárfesta í kjölfar yfirtöku OMX á
íslensku kauphöllinni....snooze.... og svo verkefni í
Eignarstýringu.´
Síðan kom Ingunn systir og Binni á árshátíð hjá SPRON
síðastliðinn fimmturdag og gerðum við margt sniðugt með þeim, á
fimmtudag fórum við með þeim í Hammersmith að skoða Primark og
TKMaxx en nóg hefur eflaust verið talað um þær búðir áður, enduðum
við kvöldið með því að fara á TAPAS bar þar sem ég fékk stærstu
T-bone steik sem ég hef séð, overall æðislegur dagur sem endaði með
æðislegu kvöldi. Föstudagurinn fór svo í Eignastýringarverkefni hjá
mér sem endaði í einhverjum 35bls með öllum útreikningum.
Laugardaginn fórum við svo og hittum þau skötuhjú á Bellu Italiu í
æðislegan síðbúinn hádegisverð og svö rölt um carnaby
street og inn í Soho í æðislegu veðri. Svo fóru þau snemma
heim til að skella sér á árshátíðina og var víst æðislegt á henni.
Sunnudagurinn fórum við að hitta þau aftur, þetta sinn í Covent
garden, mat á Pizza express og svo röltum við í Kínahverfið,
framhjá Leicester square upp Tottenham court road og inná Oxford
circus þar sem strætó var tekinn heim og Ingunn og þau upp á hótel
þar sem þau voru að fara til Íslands um kvöldið, Helgin var í alla
staði æðisleg og takk kærlega fyrir okkur Ingunn og Binni.
Síðan hefur verið sólskin og yfir 20° alla daga og við María
höfum verið dugleg að rölta og í gærdag keyptum við bakkelsi og
fórum í Hyde Park þar sem við lögðumst á teppi, borðuðum og nutum
góða veðursins, svo fór aðeins að hvessa og við röltum inn á Green
Park/Piccadilly og tókum strætó inn á Trafalgar þar sem við
borðuðum yndislega Thai mat. frábær dagur enn einu sinni.
Í dag var ég í skólanum síðasta official kennslustundin í þessu
fagi og er núna bara revision fyrir prófin eftir. enn er sólskin og
20°+ og er ég að hugsa um að fara út með yndislegu dömurnar í
göngutúr, kannski fara með Báruna að róla hver veit.
Annars þá hefur María og litli bumbugaurinn það bara mjög gott,
hann stríðir henni soldið með því að kreista á blöðruna og sparka á
nóttinni til að halda fyrir henni vöku en að öllu jöfnu fer hann
annars ágætlega með hana. Bára þrífst vel hérna og svei mér þá ef
hún hefur ekki bætt soldið utan á sig. borðar allavega ágætlega og
virðist líða vel. allt rjómabætt og fitandi 
nú eru bara 3 vikur í 2 próf og 5 vikur í seinasta prófið mitt
svo er þetta bara búið maður!
kviss bang og allt það
svo er United að spila í kvöld - vonandi tekst þeim að sigra og
komast í champions league final, en mér finnst þeir eiga það skilið
fyrir characterinn sem þeir hafa sýnt, sem og Liverpool en þessi 2
lið hafa sýnt mestan character það sem af er þessarri keppni og
væri það því við hæfi að þessi lið spiluðu úrslitaleikinn tala nú
ekki um gamla góða rivalry'ið bara fjör!
annars þá vona ég líka að mínir menn nái að klára deildina, það
væri sweet! good times
hvað er annars að frétta af ykkur?
píZ